Næstum tilbúin

Næstum tilbúin... Þetta minnir mig nú á söguna um Báru og Benna þar sem Bára var á leið í heimsókn til ömmu sinnar en gleymdi alltaf einhverju að fara í. Hún átti sem sagt að klæða sig sjálf og hélt alltaf að hún væri reddí þangað til mamma hennar sagði: "Nei Bára mín, þú átt eftir að fara í.... " og svo opnaði maður svona flipa neðst á blaðsíðunni og þar var mynd: "sokkana þína" Komst að því á efri árum að amma hafði gagnrýnt þessa bók harðlega (hún er í sömu seríu og Bláa kannan og þessi þarna um strákinn, hafragrautinn og tunglið) því að í sömu bók var Benni að fara út að leika sér í rigningunni. Hann þurfti enga mömmu til að segja sér til því hann fattaði alltaf sjálfur hverju hann var að gleyma. Af því að Benni var svo klár. Það getur vel verið að Benni hafi kannski bara verið eldri, eða Bára eitthvað seinþroska. Ég hef ekki séð þessa bók eftir að ég komst á fullorðinsár en ég verð eiginlega að fara að grafa hana upp. 

 Jæja nú er Bartal kominn að sækja mig í páskabjórinn. Ég er sko búin að pakka og allt og þá maður alveg fá sér smá bjór.

Skál!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skál í botn!!!!!!!!!!  

Hrefna Ýr (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Matti sax

Ég skal lána þér bókina

Matti sax, 30.3.2007 kl. 22:33

3 Smámynd: Hugrún

Og ertu búinn að rannsaka þetta? Er Benni duglegri en Bára? Er þetta grunsamlegur munur á kynjunum?

Ég verð örugglega bara að fara í saumana á þessu sjálf 

Hugrún , 2.4.2007 kl. 12:20

4 identicon

Á þeim árum sem bókin var skrifuð (nítjánhundruðfimmtíuogeitthvað...) ríkti sú almenna skoðun að karlmenn væru klárari en konur. Við erum nú aldeilis búnar að afsanna það er það ekki?? Annars er ég búin að lesa þessa bráðskemmtilegu bók fyrir börnin mín milljón sinnum án þess að fatta þetta með kynjamisréttið  Er samt á þeirri skoðun að Benni sé eldri en Bára.......

Jóna Bryndís (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband