Fimmtudagur, 7. júní 2007
Áfram með lífið
Mér finnst samt eins og ég verði að byrja þar sem frá var horfið og klára að segja frá páskaferðinni minni og sýna fleiri myndir.
Á fimmtudeginum fór ég svo á tónleika á Dómó. Þessir tónleikar voru hluti af blúshátíð Reykjavíkur og var Matti vinur minn að spila. Ég tók mömmu og vinkonu hennar með og við fórum og hittum Áslaugu konu Matta (þau eru hláturvinirnir sem ég hitti á kaffihúsinu ) Tónleikarnir voru að sjálfsögðu mjög skemmtilegir en það voru nokkrar hljómsveitir sem tróðu upp. Misgóðar þó eins og gengur og gerist. M-projekt var samt skemmtilegast Andrea gylfa kom að sjálfsögðu og tróð upp eins og hennar er von og vísa og svo var Didda leikkona með einhvern gjörning eða söng eða hvað sem þetta var líka. Ég ætla einhvern tímann að kaupa mér svona bleikan topp eins og gellan er í á myndinni og verða alvöru grúppía.
Á föstudeginum langa var mér svo boðið í mat til Ellu frænku og þar sem ég ætlaði á djammið með Láru og Valdísi var ekkert annað í stöðunni en að semja við Ellu frænku að bjóða þeim líka í mat. Og það er nú bara þannig með Ellu frænku að hana munar ekkert um að hafa 8 eða 11 manns í mat. Maturinn var æði, við horfðum á úrslitin í x-factor og ég kenndi liðinu að bera Jógvan fram á færeysku. Við skutlurnar enduðum svo í bænum eftir dýrðarinnar kræsingar.... minnir mig
Jæja þetta er nú allt að hafast hjá mér. Ætla samt að setja punkt hér þangað til um helgina. Bara nokkur kvöld eftir af páskaprógramminu Ég henti líka inn nokkrum myndum í síðustu færslu... svona til að hafa þetta alvöru!
Athugasemdir
Það var mikið. Velkomin aftur
Matti sax, 9.6.2007 kl. 07:03
Æji, hvað það er nú gott að sjá þig aftur á blogginu Hugrún mín. Stórt knús og vona að allt sé í gúddí! Hlakka til að hlægja með þér og það vonandi von bráðar! Kveðja Áslaug
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 9.6.2007 kl. 07:55
hæ, gott að fá blogg aftur... besta mál... nú hefur maður eitthvað að gera í vinnunni er ennþá með suð eftir krakkana úr símanum í gær...vá maður
kjartan (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 12:28
Já ég mun sko pottþétt hafa samband við ykkur þegar ég kem heim. Verðið samt að bíða þangað til í ágúst. Asnaðist ég ekki til að bjóða í lasagna einhvern tímann
Og Kjartan já... þér voru ansi hressar skvísurnar og samt líklega þær einu sem voru edrú. En ég týndi símanum mínum. Vona að hann skili sér nú aftur annars neyðist ég til að kaupa nýjan
Hugrún , 9.6.2007 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.