Jæja nú get ég hætt að horfa á bláu sporin á hnénu á mér. Ég fór til læknis í dag og hún fjarlægði saumana. Hnéð lítur bara ágætlega út, þetta virðist ætla að gróa ágætlega. Held samt að ég verði ekki kosin "Fallegasta hnéð 2007" En hver þarf á þvílíkum hégóma að halda? Ekki ég alla vega þar sem ég byggi mína sjálfsmynd á minni innri konu, ekki pakkningunum. Jeh right? Trúðuð þið þessu? Var einmitt að skoða stundaskrána í Baðhúsinu í dag. Sá mér til mikillar ánægju að þeir eru komnir með BodyStep. Jey!! Það er uppáhaldið mitt og einmitt svo gott fyrir hnén. Þannig að ágúst verður tileinkaður Baðhúsinu. Eða það er alla vega planið svona í fjarlægðinni. Gott að hreyfa aðeins á sér rassgatið áður en ég fer í sumarfrí.
En ég setti smá Búdam inn á spilarann hérna til að leyfa ykkur að heyra. Álit vel þegin!!
Þar sem það er nú ekkert markvert að gerast hér á eyjunum ætla ég að halda áfram þar sem frá var horfið með páskaferðina og setja inn einhverjar fleiri myndir.
Laugardagurinn: Ég og mamma héldum stelpumatarboð. Ég bauð tveimur vinkonum sínum og hún bauð tveimur vinkonum sínum. Byrjuðum á freyðivíni í fordrykk, svo voru rækjur með bestu gráðostasósu í öllum heiminum í forrétt.
Í aðalrétt voru svo nýsjálenskar nautalundir með bökuðum kartöflum, salati og sósu. Einfalt og gott. Kaffi, súkkulaði og líkjör setti svo punktinn yfir i-ið. Við vorum nú bara rólegar þótt ótrúlegt megi virðast og sátum bara og kjöftuðum inn í nóttina. Gott kvöld með góðu fólki.
Eftir þetta gerðist nú ekkert markvert að mig minnir. Ekki strax alla vega. Við mamma vorum bara í rólegheitum á páskadag minnir mig. Ég fór svo bara í vinnu á þriðjudeginum eins og gengur og gerist. Hitti vini og kunningja, fór í klippingu og var þá plötuð á tónleika á Dómó þá um kvöldið. Já sem var miðvikudagurinn 11.apríl, svo þið náið nú að fylgjast með þessu öllu. Ég fór sem sagt á þessa dívu-tónleika á Dómó og þeir voru mjög skemmtilegir og hvert heimsmetið í söng sett á fætur öðru. Þær sem þöndu barkana voru: Regína Ósk, Margrét Eir, Hera Björk og Heiða "Dís" (finnst að hún verði nú líka að vera með tvö nöfn) Hitti fullt af fólki sem ég hafði ekki hitt lengi og það sannast enn og aftur hvað það er gaman að hitta gamla og góða vini. Skolaði tónleikunum að sjálfsögðu niður með nokkrum hvítvínsglösum.
Helgina eftir komu Kjartan og Juli í mat. Við borðuðum restina af nautalundunum sem brögðuðust ennþá mjög vel. Ég var svo búin að plana að fara og hitta Hrefnu og Írisi í bænum seinna um kvöldið. Ég reyndist svo vera sú eina í þessu matarboði sem var í einhverju stuði þannig að ég var ein um að þiggja boð Ellu frænku um að kíkja í heimsókn. Fór þangað og endaði svo í bænum með stelpunum. Það er auðvitað alltaf gaman að hitta litlu vitleysingana, Írisi og Hrefnu og skemmtum við okkur eins og okkur einum er lagið. Fórum fyrst á Hressó og dönsuðum og enduðum svo í ruglinu á Dubliners. Tíhí nokkrar skemmtilegar myndir fylgja hér á eftir
Segið svo að málning geri ekkert fyrir mann. Linsan var að pirra mig þannig að ég þurfti að hreinsa af öðru auganu.
Jeeeyyyy, þá er páskafríið búið!! Alla vega allar sögur komnar sem ég get stutt með myndum. Spurning hvað ég á að taka fyrir næst?
Þar sem ég er nú búin að vera svo léleg í blogginu verð ég að biðja um smá skilning á tímaflakki. Það er nú einu sinni þannig að það er skemmtilegra að skrifa um það sem er manni í fersku minni. Eða það er ágætt að skrifa um lífsreynsluna til að athuga hvað maður man mikið
Ég var sem sagt boðin í sextugsafmæli mömmu Bartals á föstudaginn. Við áttum að vera mætt kl.16.30 til að taka langferðabíl. Ég var mætt með afmælisbarninu, mömmu hennar, Bartal og dóttur hans um klukkan fjögur, bara ef einhver yrði nú tímanlega í því. Það gerðist reyndar ekki þar sem Færeyingar eru ekki stundvísasta fólk í heimi. Partýið hófst á ákavíti og bjór í rútunni. Við keyrðum um í ca. einn og hálfan tíma þar sem veðrið var æðislegt, sól og geggjað útsýni. Við komumst svo loks á áfangastað eftir mikinn söng og fjör á meðan á akstrinum stóð.
Afmælið var haldið í gömlu pakkhúsi við ströndina og húsið og umhverfið voru í einu orði sagt frábær. Maturinn var æðislegur og nóg af hvítvíni og rauðvíni. Ég ákvað á einhverjum tímapunkti að það kæmi í minn hlut að sjá um að ekkert yrði eftir af víninu. Og eins og allt sem ég ákveð að taka mér fyrir hendur stóð ég mig mjög vel í þessu sjálfskipaða verkefni mínu. Ég skemmti mér alla vega konunglega, talaði færeysku eins og innfædd og söng lög sem ég kunni ekki. Söng líka nokkur velvalin íslensk lög en ég held ég hafi alveg sleppt dansinum... nei... reyndar ekki, dansaði vikivaka heillengi. Það er lúmskt gaman og ótrúlegt hvað þessi einföldu spor geta vafist fyrir manni! Mér fannst samt krúttlegast þegar tvær sjö ára skvísur slógust í hópinn og kunnu þetta allt saman upp á hár. Þegar líða tók á kvöldið fann ég einmitt þessar sjö ára í rúmi sem hafði verið komið fyrir hjá fatahenginu. Ég ákvað að fara að þeirra fordæmi og leggja mig hjá þeim. Bartal vakti mig svo þegar rútan var komin og tími var kominn til að halda heim á leið. Ég komst út í rútu og ákvað að halda bara áfram að sofa þar. Þegar við vorum svo komin til Þórshafnar var minns orðinn ýkt hress aftur og tók boði um að kíkja aðeins í bæinn, reyndar eftir að sú ágæta kona var búin að sannfæra mig um að liti ekkert hræðilega út. Það var nú ekki mikið fjör í bænum og við ákváðum að kíkja á Manhattan. Þeir sem hafa komið til Þórshafnar vita kannski að það er stórhættuleg brekka sem liggur fyrst niður og svo aftur upp að Manhattan. Ég á ofurhælunum mínum var að labba niður þessa háskabrekku þegar ég dett allt í einu, mjög dömulega samt, beint á hnéð. Ég var fljót að standa upp til að valda mér og fylgdarkonu minni ekki miklum vandræðaheitum. Fann aðeins til í hnénu en lét það ekki á mig fá og hélt ferðinni áfram á Manhattan. Hugsaði á leiðinni að fyrst ég væri að detta á annað borð hefði það átt að gerast miklu fyrr um kvöldið miðað við ástandið á skvísunni. En jæja.... Á Manhattan komumst við nú og ég fór á klósettið. Þá blasti við mér gat á buxunum mínum, á sokkabuxunum og þegar ég fór að athuga það nánar... líka á hnénu. Og það sást alveg í kjötið, eins og maður sagði alltaf þegar maður fékk slæm sár sem krakki. Ég tók klósettpappír og setti við sárið og lét sokkabuxurnar halda við pappírinn. Fór svo fram og hitti þar fylgdarkonuna sem sagði að hér væri ekkert skemmtilegt þannig að við gætum alveg farið. Við fórum út og ég sagðist ekki þora öðru en að fara upp á slysó til að láta kíkja á hnéð. Hún fékk vægt taugaáfall og bauðst til að finna með mér leigubíl og senda mig upp á slysó. Sem er "skaðastova" á færeysku. Mér fannst hún alltaf segja skíðastova og hló mikið að því. En upp á slysó fór ég þar sem tvær konur gerðu að sárum mínum. Ég var að sjálfsögðu í kastinu allan tímann og fannst hjúkkan agalega dónaleg þegar hún bað mig að fara úr buxunum. "Buxunum?? En ég er bara með sár á hnénu??" Ég lét þó undan og treysti því að þær myndu ekki misnota sér ástand mitt. Ég varð því ægilega glöð þegar hjúkkan svaraði því játandi að það hefði verið rétt hjá mér að koma. Ég var nefnilega alltaf að velta því fyrir mér hvað það hefði verið vandræðalegt ef þær hefðu bara skellt plástri á sárið og sagt mér að fara heim að sofa. En nei.. það þurfti að sauma. Hjúkkan var alltaf að vara mig við einhverjum sársauka sem lét nú á sér standa en ég leyfði henni nú samt að halda í höndina á mér á meðan ég var deyfð. Held að henni hafi bara liðið betur yfir því. Konulæknirinn saumaði mig svo saman, 4 eða 5 spor og þar sem ég er búin að horfa svo mikið á Grey's Anatomy var ég alltaf að velta fyrir mér hvort hún hefði gert þetta áður. Ég held nú samt að hún hafi staðið sig vel stelpan. Ég var svo leyst út með stífkrampasprautu og þá mátti ég fara heim. Ég bað einhvern þarna um að hringja á leigubíl fyrir mig þar sem ég var víst búin að týna símanum mínum og eftir langa og stranga nótt gat ég loksins farið að sofa.
Ég vaknaði daginn eftir við að Bartal var komin til að sækja fötin sín. Hann var fjarri góðu gamni og var í kastinu yfir að ég hefði endað upp á slysó. Hann vissi heldur ekkert um símann minn en ég var nú ekki mjög áhyggjufull þar sem það eru allir svo heiðarlegir hérna í Færeyjum. Ég vissi að ef einhver hefði fundið hann myndi hann að öllum líkindum enda hjá mér aftur. Sem varð svo auðvitað raunin. Nokkrum hálftímum síðar kemur mamma hans til mín og segist vera með símann minn. Vinkona hennar hafði fundið hann í jakkavasa mannsins síns. Ekki veit ég hvað hann var að gera þar nema að hann hefur trúlega fundið hann. Konan hans var nú eitthvað efins og ég er að spá í hvort ég eigi að hringja í hana og segja henni að það séu nú engar líkur á að ég hafi verið að reyna við manninn hennar
En þetta var alla vega mjög skemmtilegt kvöld þótt það hafi kannski endað með öðrum hætti en ætlað var. En ég gat nú ekki látið brósa litla einan um að heimsækja slysó að loknu djammi, ég varð að fá að prófa líka.
Ég ætla að henda inn myndum af herlegheitunum inn á flickr síðuna mína. Njótið!!
Mér finnst samt eins og ég verði að byrja þar sem frá var horfið og klára að segja frá páskaferðinni minni og sýna fleiri myndir.
Á fimmtudeginum fór ég svo á tónleika á Dómó. Þessir tónleikar voru hluti af blúshátíð Reykjavíkur og var Matti vinur minn að spila. Ég tók mömmu og vinkonu hennar með og við fórum og hittum Áslaugu konu Matta (þau eru hláturvinirnir sem ég hitti á kaffihúsinu  ) Tónleikarnir voru að sjálfsögðu mjög skemmtilegir en það voru nokkrar hljómsveitir sem tróðu upp. Misgóðar þó eins og gengur og gerist. M-projekt var samt skemmtilegast  Andrea gylfa kom að sjálfsögðu og tróð upp eins og hennar er von og vísa og svo var Didda leikkona með einhvern gjörning eða söng eða hvað sem þetta var líka. Ég ætla einhvern tímann að kaupa mér svona bleikan topp eins og gellan er í á myndinni og verða alvöru grúppía.
Á föstudeginum langa var mér svo boðið í mat til Ellu frænku og þar sem ég ætlaði á djammið með Láru og Valdísi var ekkert annað í stöðunni en að semja við Ellu frænku að bjóða þeim líka í mat. Og það er nú bara þannig með Ellu frænku að hana munar ekkert um að hafa 8 eða 11 manns í mat. Maturinn var æði, við horfðum á úrslitin í x-factor og ég kenndi liðinu að bera Jógvan fram á færeysku. Við skutlurnar enduðum svo í bænum eftir dýrðarinnar kræsingar.... minnir mig
Jæja þetta er nú allt að hafast hjá mér. Ætla samt að setja punkt hér þangað til um helgina. Bara nokkur kvöld eftir af páskaprógramminu   Ég henti líka inn nokkrum myndum í síðustu færslu... svona til að hafa þetta alvöru!
Þá er brjálaða páskaprógrammið hafið og hingað til hefur mest allt staðist áætlun. Kom á föstudaginn síðasta og fór beint til Láru kláru og eldaði fyrir hana dýrindiskjúklingarétt. Við sátum svo og gauluðum í singstar með misjöfnum árangri og enduðu þær tilraunir í miðbæ Reykjavíkur. Eitthvað höfum við nú kannski sopið aðeins of stíft en við vorum að skrönglast heim undir morgunn. Ég týndi myndavélinni og ríkti mikil sorg yfir því daginn eftir.
Ég tók mig svo saman í andlitinu eftir mjög slappan laugardag, þar sem ég eyddi drjúgum tíma dagsins inn á salerninu, og fór á AME á Nasa. Æðislegir tónleikar með æðislegum færeyskum tónlistarmönnum. Tónleikarnir fóru nú misvel í þá sem voru með mér og endaði partýið mjög skyndilega fyrir sum okkar. Fer ekki nánar út í það
Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur og eyddi ég honum bara heima í rólegheitunum. Hringdi samt á skemmtistaðina til að athuga með myndavélina og mér til mikillar furðu hafði hún fundist. Gleði...gleði.
Ég mætti svo til vinnu á mánudeginum eins og vera bar en fór svo á kaffihús með Láru um kvöldið. Hitti þar fyrir algjöra tilviljun tvo af bloggvinum mínum og sátum við og hlógum og kjöftuðum þar til okkur var farið að verkja í andlitið.
Þriðjudagur: Ekkert markvert á dagskrá
Miðvikudagur: Bjórkvöld hjá vinnunni. Það byrjaði rólega, sátum og sötruðum öl þangað til garnirnar voru farnar að gaula en þá fórum við á Caruso. Þaðan röltum við á hina og þessa staði. Mjög gaman og allir í stuði... sumir meira en aðrir... en fer heldur ekki nánar út í það.
Í dag var mér og mömmu svo boðið í brunch til bróður hennar mömmu og konunnar hans og þar rigndi yfir okkur kræsingunum, malla mínum til mikillar ánægju.  Í kvöld eru það svo tónleikar á Domo.
Brjálað að gera sko....
Næstum tilbúin... Þetta minnir mig nú á söguna um Báru og Benna þar sem Bára var á leið í heimsókn til ömmu sinnar en gleymdi alltaf einhverju að fara í. Hún átti sem sagt að klæða sig sjálf og hélt alltaf að hún væri reddí þangað til mamma hennar sagði: "Nei Bára mín, þú átt eftir að fara í.... " og svo opnaði maður svona flipa neðst á blaðsíðunni og þar var mynd: "sokkana þína" Komst að því á efri árum að amma hafði gagnrýnt þessa bók harðlega (hún er í sömu seríu og Bláa kannan og þessi þarna um strákinn, hafragrautinn og tunglið) því að í sömu bók var Benni að fara út að leika sér í rigningunni. Hann þurfti enga mömmu til að segja sér til því hann fattaði alltaf sjálfur hverju hann var að gleyma. Af því að Benni var svo klár. Það getur vel verið að Benni hafi kannski bara verið eldri, eða Bára eitthvað seinþroska. Ég hef ekki séð þessa bók eftir að ég komst á fullorðinsár en ég verð eiginlega að fara að grafa hana upp.
Jæja nú er Bartal kominn að sækja mig í páskabjórinn. Ég er sko búin að pakka og allt og þá maður alveg fá sér smá bjór.
Skál!!!
Smátt og smátt er verkefnum sem þarf að ljúka fyrir heimferð að verða lokið. Ég hef afkastað eftirfarandi: Farið með buxur í hreinsun, keypt naglalakk, keypt nærbuxur, þvegið allt sem á að fara með, tekið til sumt sem á að fara með, keypt í páskamatinn, planað næstu helgi út í ystu æsar, undirbúið mig andlega fyrir ysinn og þysinn í stórborginni.
Þetta er eftir: Klára að finna allt dótið til sem ég ætla að taka með og koma því í töskur, selja miðann minn á Chris Christofferson sem ég ætlaði á 4.apríl, skila stólum og pottum sem ég er búin að vera með í láni síðan í byrjun nóvember, smakka páskabjórinn.
Þannig að það er hellingur búinn og bara smá eftir. Græja rest á morgun... hlakka samt mest til að smakka páskabjórinn.
Jæja verð að vinna aðeins... er bara að reyna að standa mig hérna!
Sofnaði hjá knéfiðlu en vaknaði hjá kontrabassa.
Úff hver hefur ekki lent í því???
(stolið úr Myndin af heiminum)
Jæja tvær bloggfærslur á einum degi.... Usssss.... Reyndar skrifaðar eftir miðnætti í nótt og svo rétt fyrir miðnætti í kvöld.... en lúkkar geðveikt vel út á við. Og er maður ekki alltaf að reyna að lúkka vel út á við. Ég veit ég geri það alla vega.
Hef reyndar ekkert að segja. Ég svaf allt of lengi í dag og þar að auki var tekinn af mér einn klukkutími þar sem verið var að breyta klukkunni hérna. Já og svo er ég með svo mikla hellu í eyrunum að ég heyri ekki neitt. Sem skiptir ekki öllu máli þar sem ég þarf svo sem ekki að heyra neitt mikið í dag. Bara að ég heyri þegar þvottavélin er búin. Þetta verður alla vega löng nótt þar sem ég mun örugglega ekki sofna fyrr en seint og um síðir. Þá er trikkið að fara ekkert upp í rúm fyrr en maður er orðinn þreyttur þannig að ég hugsa að ég muni bara vera dugleg að lesa og hugsa um allt sem mig langar að kaupa mér. Mig hefur gripið eitthvert kaupæði... hugsa ekki um annað en veraldlega hluti sem mig langar að eignast. En ég hef nú alveg fengið svona æði áður og ég veit að það mun ganga yfir. Svo kostar nú ekkert að láta sig dreyma. Það hættulega við það samt er að þá fer ég að lifa í framtíðinni í staðinn fyrir að einbeita mér að nútíðinni. Enda er framtíðin stundum auðveldari en nútíðin. Get alveg farið langt fram úr sjálfri mér í framtíðarpælingum í staðinn fyrir að taka á málum líðandi stundar. En það er víst fyrsta skrefið að gera sér grein fyrir vandanum til að geta tæklað hann. Enda eru þetta yfirleitt bara tímabil sem líða hjá.
Það er farið að bætast við páskaplanið. Fyrsta helgin er orðin uppbókuð en þó er pláss fyrir vöfflukaffi á sunnudeginum ef einhver vill taka það að sér. Annars er ég ekkert að missa mig í planleggingum fyrir þessa ferð. Ætla nú svona meira að leyfa þessu að ráðast. Vil þó að fólk hringi í mig ef það er að fara að halda partý eða er boðið í eitt slíkt þar sem ég ætla að vera allsvakalega dugleg í djamminu, svona eins og heilsan leyfir alla vega.
Nenni annars ómögulega í vinnuna á morgun.
PS. Er loksins búin að setja inn myndir af árshátíðinni á flickr.
Pabbi hringdi í mig í kvöld ferlega fúll. Hann var nú aðallega fúll yfir því sem honum fannst heldur ódýr redding á bloggleysi sem hefur hrjáð mig undanfarnar vikur. Hann sagðist alveg vita það að mér fyndist gott að sofa og allt það sem kom fram á myndunum. Hann heimtaði bloggfærslu og þar sem ég er búin að vera gróin við sófann meira og minna alla síðustu viku sökum veikinda hef ég nú ekki frá miklu að segja. Það hefur vakið furðu mína hvað það getur verið margt óáhugavert í sjónvarpinu þrátt fyrir tugi stöðva. En á flakki mínu um sjónvarpsheima í kvöld sá ég allt í einu unga ljóshærða stelpu að syngja. Ég staldraði við því það var greinilegt að ekki var um fagmann að ræða. Eftir nokkurra sekúndna áhorf sá ég allt í einu nafnið Guðbjörg sem mér fannt nú hljóma mjög íslenskt. Þegar hún var búin var Halla allt í einu mætt á skjáinn ásamt Palla, Ellý og Einari Bárða. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Var að velta fyrir mér hvort einhverju hefði slegið saman í sjónvarpinu eða þá að ég hefði bara sofnað og væri að dreyma að ég væri að horfa á x-factor. Ég fattaði svo reyndar að trúlega hefði færeyska sjónvarpið keypt þættina til að sýna landanum Jógvan þenja raddböndin. Ég veit að ég er mjög mikið á eftir að tjá mig um þessa þætti en ég hef blessunarlega ekki getað horft á þetta fyrr. Ég var með bjánahroll allan tímann sem á þessum hryllingi stóð. Ég veit ekki hvað mér fannst verst... jú ég veit það... Ellý. Djók!! Ég fylltist alla vega ekki neinu þjóðarstolti þrátt fyrir að vera í "útlöndum". Ekki frekar en þegar Eiríkur mun stíga á stokk í Finnlandi. En það er efni í aðra bloggfærslu. Ég er alla vega bara fegin að ég mun verða í Íslandi næst þegar þessi þáttur verður sýndur hér þannig að ég mun ekki villast inn á þetta aftur.
Til að fyrirbyggja allan misskilning elska ég samt svona þætti... kvíði t.d. mjög að missa af American Idol á meðan ég verð heima í páskafríi. Og ég verð að fara að finna mér eitthvað að gera á föstudagskvöldum því að Dancing on Ice var að klárast í gær. Og já, ég er að verða sjónvarpssjúklingur... Er búin að horfa of mikið á E-entertainment þar sem ég stend sjálfa mig að því að vera farin að hugsa um bleikjun á tönnum, fitusog og brjóstaminnkun.  Og svo langar mig ógeðslega í milljón króna demantshálsmen og svona kjól eins og Drew Barrymore var í á Golden Globe og hár eins og Eva Longoria.
En já það styttist í að ég komi til landsins og þá lagast ég aftur... lofa